Fotbolti.net
23.08.26 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Goðsögn gagnrýnir vinnubrögð Arsenal

Ian Wright.

Ian Wright.

Canon

Mynd: EPA

Ian Wright, goðsögn Arsenal, hefur gagnrýnt félagið harðlega fyrir hvernig það hefur komið fram við kantmanninn Gabriel Martinelli en óvissa ríkir um framtíð Brasilíumannsins hjá félaginu.

Martinelli hefur verið orðaður frá Arsenal í allt sumar og Galatasaray ræddi möguleg kaup á honum fyrr í þessum mánuði. Martinelli hefur hins vegar sjálfur gefið til kynna að hann sé ánægður hjá Arsenal og hafi engan áhuga á að fara í deild utan fimm stærstu deilda Evrópu.
Martinelli var ekki í leikmannahópi Arsenal í sigrunum gegn Manchester City í Samfélagsskildinum og gegn Coventry City á föstudagskvöldið. Christos Tzolis, sem Arsenal keypti í sumar, byrjaði báða leikina og vakti athygli fyrir frammistöðu sína.

Wright ræddi stöðuna á Sky Sports eftir leikinn og sagði:

„Varðandi Martinelli og hvernig komið hefur verið fram við hann, þá veldur það mér miklum óþægindum."

Hann bætti við að Martinelli gæfi alltaf 100 prósent og hefði átt stór augnablik fyrir Arsenal í mikilvægum leikjum. „Ég er ekki að segja að hann sé besti leikmaðurinn, en hann hefur átt stór augnablik fyrir Arsenal í stórum leikjum. Það hvernig komið er fram við hann núna finnst mér ekki rétt."

Þegar Wright var spurður nánar hvað hann ætti við sagðist hann vita að Martinelli væri ekki að fá upplýsingar um stöðu sína. „Hann er ekki í hópnum í kvöld, það er ekki verið að tala við hann og hann veit ekki hvað er í gangi.“

Wright staðfesti jafnframt að hann hefði beina vitneskju um stöðuna en hann sagðist vera leiður yfir stöðunni.

„Mér finnst hann hafa gert nóg fyrir þetta lið til þess að eiga skilið aðeins meiri virðingu en hann hefur fengið að undanförnu.“
Gabriel Martinelli.

Gabriel Martinelli.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.