Fotbolti.net
23.08.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

England: Dramatík hjá City - Brighton rúllaði yfir Villa

Marc Guehi jafnaði metin fyrir City.

Marc Guehi jafnaði metin fyrir City.

Canon

Mynd: EPA

Það voru tveir mjög áhugaverðir leikir að klárast í ensku úrvalsdeildinni núna fyrir stuttu.

Manchester City byrjar tímabilið á sigri í fyrsta leiknum í deildinni undir stjórn Enzo Maresca.
Byrjunarlið Newcastle og Liverpool: Bæði lið með nýjan stjóra
TENGT EFNI

Byrjunarlið Newcastle og Liverpool: Bæði lið með nýjan stjóra

Leikurinn byrjaði reyndar ekki vel fyrir City þar sem Marcus Tavernier kom Bournemouth yfir um miðbik fyrri hálfleiks. Justin Kluivert hefði hæglega getað séð til þess að staðan væri 0-2 í hálfleik en Gianluigi Donnarumma varði frá honum.

City tapaði 3-0 sannfærandi gegn Arsenal í Samfélagsskildinum og því hefði verið erfitt fyrir Maresca að tapa þessum leik líka, jafnvel þó svo að tímabilið sé rétt að byrja. En í seinni hálfleiknum náði City að snúa dæminum við.

Marc Guehi fékk dauðafæri til að jafna metin en skallaði fram hjá eftir hornspyrnu. Hann skuldaði og jafnaði svo á 84. mínútu eftir hornspyrnu. Þetta kom loksins hjá City og svo fylgdi sigurmarkið þegar Josko Gvardiol skoraði. Varnarmennirnir sáu um þetta í dag. Fyrst var flautuð rangstaða á Gvardiol en því var snúið við eftir VAR-skoðun.

City byrjar því á dramatískum sigri en það er spurning hvort þeir bláklæddu muni veita Arsenal samkeppni á þessu tímabili.

Brighton rúllaði yfir Aston Villa
Í hinum leiknum sem var að klárast vann Brighton mjög svo sannfærandi sigur á Aston Villa.

Aston Villa var í djúpum dal eftir fyrri hálfleikinn. Victor Lindelöf skoraði sjálfsmark eftir sjö mínútur, Maxim De Cuyper bætti við marki tveimur mínútum síðar og svo bætti Jack Hinshelwood við tveimur mörkum með stuttu millibili. Staðan var því 4-0 þegar liðin gengu til búningsklefa.

Vont versnaði því Joao Gomes, nýr leikmaður Aston Villa, var svo rekinn af velli undir lok fyrri hálfleiks. Hann virtist mjög vanstilltur allan fyrri hálfleikinn og fékk rauða spjaldið.

Aston Villa er með mikið breytt lið frá síðasta tímabili en þetta lítur ekki sérlega vel út hjá þeim. Hvorki Emiliano Martinez né Ollie Watkins voru í hóp hjá Villa í dag út af óvissu um framtíð þeirra.

Brighton bætti engu við í seinni hálfleik og lokatölur því 4-0.

Brighton 4 - 0 Aston Villa
1-0 Victor Lindelof ('8 , sjálfsmark)
2-0 Maxim De Cuyper ('18 )
3-0 Jack Hinshelwood ('30 )
4-0 Jack Hinshelwood ('31 )
Rautt spjald: Joao Gomes, Aston Villa ('40)

Manchester City 2 - 1 Bournemouth
0-1 Marcus Tavernier ('26 )
1-1 Marc Guehi ('84 )
2-1 Josko Gvardiol ('90 )
Josko Gvardiol skoraði sigurmarkið.

Josko Gvardiol skoraði sigurmarkið.

Canon

Mynd: EPA

Hinshelwood skoraði tvö fyrir Brighton.

Hinshelwood skoraði tvö fyrir Brighton.

Canon

Mynd: EPA

Gomes fékk rautt spjald í fyrsta leik.

Gomes fékk rautt spjald í fyrsta leik.

Canon

Mynd: Aston Villa

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.