Fotbolti.net
23.08.26 - 14:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Maresca í veseni en Aston Villa í enn meira veseni

Enzo Maresca, nýr stjóri Manchester City.

Enzo Maresca, nýr stjóri Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Það eru heldur betur áhugaverðir hlutir að gerast í ensku úrvalsdeildinni í leikjunum sem hófust klukkan 13:00.

Aston Villa er í djúpum dal gegn Brighton en þar er staðan 4-0 fyrir heimamenn í hálfleik. Victor Lindelöf skoraði sjálfsmark eftir sjö mínútur, Maxim De Cuyper bætti við marki tveimur mínútum síðar og svo bætti Jack Hinshelwood við tveimur mörkum með stuttu millibili.
Joao Gomes, nýr leikmaður Aston Villa, var svo rekinn af velli undir lok fyrri hálfleiks. Hann virtist mjög vanstilltur allan fyrri hálfleikinn.

Aston Villa er með mikið breytt lið frá síðasta tímabili en þetta lítur ekki sérlega vel út. Hvorki Emiliano Martinez né Ollie Watkins eru í hóp hjá Villa í dag út af óvissu um framtíð þeirra.

Svo er Manchester City að spila við Bournemouth á Etihad-vellinum og þar er staðan 0-1 fyrir gestina. Enzo Maresca er ekki að fara vel af stað sem stjóri City en hans menn töpuðu 3-0 gegn Arsenal í Samfélagsskildinum um síðustu helgi.

Það var Marcus Tavernier sem kom Bournemouth yfir en Justin Kluivert hefði hæglega getað séð til þess að staðan væri 0-2 í hálfleik en Gianluigi Donnarumma varði frá honum.

Það mun svo sannarlega myndast umræða ef Maresca tapar þessum leik líka.

Þess má geta að hægt að fylgjast með báðum þessum leikjum í beinni textalýsingu á Fótbolta.net, og einnig geta áskrifendur séð ítarlega tölfræði úr leikjunum.

Joao Gomes fékk rautt spjald.

Joao Gomes fékk rautt spjald.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.