Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 23. september 2018 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óli Kristjáns: Ási sagði mér að það væri jafntefli í KR-leiknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH náði í dramatískan sigur gegn toppliði Vals í næstsíðustu umferðinni í Pepsi-deild karla í dag. Eddie Gomes skoraði sigurmarkið í uppbótartíma en Gunnar Nielsen, markvörður FH, fór meðal annars upp í teig í hornspyrnunni. FH ætlaði að gera allt til að vinna leikinn.

Lestu um leikinn: FH 2 -  1 Valur

FH og KR eru jöfn að stigum fyrir lokaumferðina. Þessi lið eru að berjast um fjórða sætið sem gefur þáttökurétt í Evrópukeppni á næsta tímabili.

„Ási sagði mér að það væri jafntefli í KR-leiknum og mér fannst eftir þetta mark sem við fengum á okkur að ef við myndum setja þrýsting að þá myndi eitthvað detta fyrir okkur. Þetta var geggjað," sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, eftir leikinn.

„Í fyrri hálfleik vorum við órólegir á boltann en áttum þó skot í stöngina. Við pressuðum illa, vorum að fara of mikið afturábak í staðinn fyrir að fara áfram."

„Við pressuðum betur í seinni hálfleik og fundum betri sendingarleiðir. Þannig náðum við yfirhöndinni í leiknum."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner