Gult eða rautt? Erlendur Eiríksson lætur Þórð Þorstein Þórðarson fá gula spjaldið. Bóas, stuðningsmaður KR, kallar eftir rauðu spjaldi í stúkunni.
Helgi Sigurðsson og Hrafnkell Helgason formaður meistaraflokksráðs Fylkis. Helgi fékk kveðjugjöf í síðasta heimaleik sínum í Árbænum í gær.
Næstsíðasta umferðin í Pepsi Max-deild karla fór fram í gær og þar fór bikar á loft. Fyrir síðustu umferðina er mesta spennan í kringum síðasta Evrópusætið og gullskóinn.
Lokahófið er á léttu nótunum en við erum alltaf tilbúin að taka við kvörtunum í gegnum tölvupóst!
Lokahófið er á léttu nótunum en við erum alltaf tilbúin að taka við kvörtunum í gegnum tölvupóst!
Leikur umferðarinnar: Það var fjör í Vesturbænum þar sem KR tók á móti FH í stórleik umferðarinnar. Liðin skiptust á að hafa forystuna en á endanum unnu Íslandsmeistararnir 3-2 og lyftu Íslandsmeistarabikarnum eftir leik.
Ekki liðið:
Grín umferðarinnar: Pálmi Rafn Pálmason og Óskar Örn Hauksson, báðir 35 ára, gerðu grín að umræðu um að KR liðið sé of gamalt.
Pottaferð umferðarinnar: Rúnar Kristinsson og Bjarni Guðjónsson, þjálfarar KR, hentu sér í pottinn í fötunum ásamt leikmönnum liðsins eftir bikaraafhendinguna í gær.Elliheimilið Grund 🏆 pic.twitter.com/QmGsD7GsOA
— Palmi Rafn Palmason (@palmirafn) September 22, 2019
Hreinskilni umferðarinnar: Gunnar Þorsteinsson, fyrirliði Grindavíkur, var ómyrkur í máli eftir að liðið féll. „Þetta er bara hluti af stærri niðursveiflu á félaginu. Kvennaliðið er búið að falla um tvær deildir á tveimur árum við erum að falla núna og Þetta er bara mjög erfitt bæði í rekstrarlegu tiliti og hvernig leikmenn við erum að búa til. Við höfum svo sem ekki verið að búa til marga leikmenn en það er erfitt þegar þú ert svona lítið bæjarfélag," sagði Gunnar í viðtalinu eftir leik.Liðsandinn
— Jay-O (@jonasoli) September 22, 2019
Nefnið mér einhvern þjálfara á hæsta leveli sem myndi henda sér í pottinn (í fötum btw. ) með leikmönnum og syngja manna hæst
I'll wait pic.twitter.com/vr8rT7PrOl
Þekkti markið: Elís Rafn Björnsson, bakvörður Stjörnunnar, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark gegn gömlu félögunum í Fylki í Árbænum. Elís hefur áður skorað í Árbænum og þekkir mörkin þar. Hann hristi sjálfsmarkið af sér og hjálpaði Stjörnunni að vinna 4-1 að lokum.
Tvöfalt spjald umferðarinnar: Bjarki Steinn Bjarkason og Hörður Ingi Gunnarsson, leikmenn ÍA, tóku Valgeir Valgeirsson báðir niður í sömu skyndisókninni og fengu báðir gult spjald.
Karma umferðarinnar: Brandur Olsen fagnaði ógurlega framan í stuðningsmenn KR þegar að FH komst yfir í Vesturbænum. KR var komið í 2-1 tíu mínútum seinna og voru KR-ingar í stúkunni duglegir að láta Brand heyra það í leiknum.
Bið umferðarinnar: Áður en að leikur KR og FH hófst byrjaði voru allskonar viðurkenningar og verðlaun. FH stóð heiðursvörð, KR-ingar héldu á blysum, KR veitti Davíð Þór Viðarssyni og Skúla Jóni Friðgeirssyni viðurkenningu og Björn Daníel Sverrisson gaf Óskari Erni Haukssyni blóm. Leikurinn ætlaði aldrei að hefjast.
Dómari umferðarinnar: Þorvaldur Árnason átti flottan dag í 1-1 jafntefli ÍBV og Breiðabliks í Eyjum.
Verðlaunaafhending og fjör í Innkastinu á #fotboltinet í kvöld. @elvargeir og @tomthordarson á sínum stað. @G_Birgis upptekinn í #Landinnlive á Grenivík!https://t.co/7xSjYwJqgT
— Magnús Már Einarsson (@maggimar) September 22, 2019
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir