Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. október 2019 13:00
Elvar Geir Magnússon
Mourinho lærir þýsku - Orðaður við Dortmund
Mourinho heilsar.
Mourinho heilsar.
Mynd: Getty Images
Þýskir fjölmiðlar segja að Jose Mourinho sé byrjaður að læra þýsku en hann er orðaður við Borussia Dortmund.

Mourinho hefur einnig verið orðaður við endurkomu til Real Madrid en hann hefur verið að starfa sem sparkspekingur í sjónvarpi síðan hann var rekinn frá Manchester United í desember á síðasta ári.

Dortmund hefur sýnt óstöðugleika í upphafi tímabils í þýsku deildinni en er þó aðeins einu stigi frá efsta sætinu.

Lucian Favre er stjóri Dortmund en Mourinho hefur aldrei stýrt þýsku liði og talið að hann sé spenntur fyrir því að mæta í Bundesliguna.

Mourinho hefur á stjóraferli sínum unnið fjölda titla, þar á meðal Meistaradeildina með Porto og Inter.
Athugasemdir
banner
banner
banner