Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 23. október 2020 22:14
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Valencia tapaði óvænt fyrir Elche
Elche menn fagna marki í kvöld
Elche menn fagna marki í kvöld
Mynd: Getty Images
Elche 2 - 1 Valencia
1-0 Josan ('19 )
2-0 Fidel ('37 )
2-1 Lato Toni ('74 )

Valencia tapaði óvænt fyrir Elche, 2-1, í spænsku deildinni í kvöld en þetta var þriðji sigur Elche í deildinni.

Josan og Fidel komu Elche í 2-0 í fyrri hálfleik áður en Toni Lato minnkaði muninn þegar um það bil fimmtán mínútur voru eftir.

Valencia hefur farið afar illa af stað á þessari leiktíð en þetta var fjórða tap liðsins í deildinni.

Elche er í fimmta sæti með 10 stig en Valencia í 13. sæti með aðeins 7 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner