23.10.26 - 09:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Treysta á að FH mæti fagmannlega í lokaleikinn

Úr fyrri leik Þórs og FH á Kaplakrikavelli.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

KA vann ÍBV á Greifavellinum í maí.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Annað hvort Þór eða KA fellur á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 14:00 hefst lokaumferðin í Bestu deildinni og tveir leikir fara fram sem skipta verulegu máli. Þór er með eins stigs forskot á KA en staðan er þannig að ef KA fær fleiri stig en Þór þá munu gulir og bláir halda sæti sínu í deildinni.
Þór fer á Kaplakrikavöll og KA tekur á móti botnliði ÍBV. Hvorki ÍBV né FH hafa að neinu að keppa. ÍBV mun enda í botnsæti deildarinnar en FH gæti farið upp um eitt sæti.
Fótbolti.net ræddi í gær við tvo leikmenn KA um lokaumferðina. Það voru þeir Hallgrímur Mar Steingrímsson og Jakob Snær Árnason.

TENGT EFNI
Grímsi: Vildi ekki hitta neinn og lokaði mig inni í herbergi í tvo daga
Hallgrímur Mar
Um FH gegn Þór
„FH er ekki að keppa um neitt og þeir spila við lið sem við erum að reyna að fella. Ég hef ekki trú á neinu öðru en að leikmenn FH vilji spila sinn leik. Það er oft talað um að þeir séu ekki að keppa um neitt og muni slappa eitthvað af í þeim leik, en það skiptir hver einasti leikur máli fyrir leikmann. Það eru allir að horfa á leikinn og auðvitað viltu standa þig og svo trúi ég ekki öðru en að Jói Kalli (þjálfari FH) sé það mikill fagmaður að hann nálgist leikinn og ætli að vinna hann."
Um KA gegn ÍBV
„Við getum ekki hugsað um neitt annað og ég er ekki að hugsa um neitt annað. Þó maður hafi auðvitað hugsað fyrstu dagana eftir Valsleikinn, sem voru mjög þungir, þá pældi maður eitthvað í þessu en maður er búinn að ná því úr sér. Eina sem skiptir máli erum við og það sem við gerum í okkar leik og svo bara kemur allt annað í ljós," sagði Grímsi.
Jakob Snær
Um FH gegn Þór
„Ég er tiltölulega bjartsýnn. Maður verður bara að trúa á þessa FH-inga og trúa því og treysta að þeir geri þetta almennilega. Ég hef alveg trú á því að þeir eigi að taka allavegana stig á heimavelli á móti Þór, en maður hefur kannski svona smá áhyggjur af því sem þeir hafa að keppa um. Maður vonar náttúrulega bara að þeir geri þetta fagmannlega. Ég er bara bjartsýnn, það er einhvern veginn í mínu eðlisfari að vera bara jákvæður og horfa þannig á hlutina."
Um KA gegn ÍBV
„Það er náttúrulega bara númer eitt, tvö og þrjú. Við getum lengi talað um að treysta á aðra og eitthvað. Auðvitað væri langbest að geta bara treyst á sjálfan sig og að sjálfsögðu var það planið. Það fór kannski aðeins úrskeiðis og núna þurfum við að hluta til að treysta á aðra. En það hjálpar okkur ekkert að treysta á FH ef við ætlum ekki að klára okkar verkefni sjálfir. Við bara verðum að einbeita okkur að okkur og síðan verður bara hitt að koma í ljós," sagði Jakob.