Fotbolti.net
22.10.26 - 23:34
Ívan Guðjón Baldursson

Þjálfari Getafe: Stjórnin hefur svikið mig

Þjálfari Getafe: Stjórnin hefur svikið mig
Canon

Mynd: EPA

José Bordalás, þjálfari Getafe, er þreyttur á þeim litla stuðningi sem hann nýtur frá stjórnendum félagsins.
Sambandsdeildin: Eggert lagði upp - Tómas tapaði gegn Salah
TENGT EFNI

Sambandsdeildin: Eggert lagði upp - Tómas tapaði gegn Salah

Bordalás hefur þjálfað Getafe í rúmlega þrjú ár og náð mögnuðum árangri miðað við gæði leikmanna í hópnum.

Getafe tryggði sér óvænt sæti í Sambandsdeildinni á síðustu leiktíð og er komið með eitt stig eftir tvær fyrstu umferðirnar. Liðið gerði jafntefli við Universitatea Craiova í Rúmeníu í fyrstu umferð og steinlá svo á heimavelli gegn Lugano frá Sviss fyrr í kvöld.

„Mér líður eins og ég hafi verið svikinn, ég á þetta ekki skilið. Félagið hefur svikið loforð um að styrkja leikmannahópinn ár eftir ár," sagði Bordalás hundsvekktur eftir stórt tap.

„Við erum ekki samkeppnishæfir í einni keppni, hvað þá í þremur!"

Getafe er með 9 stig eftir 9 umferðir á nýju tímabili í La Liga og heimsækir Lebrijana í næstu umferð spænska konungsbikarsins.
Þjálfari Getafe: Stjórnin hefur svikið mig
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.