23.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
FHL spilar undir merkjum Hattar á næsta ári

FHL vann Lengjudeildina 2024.

Mynd: FHL

FHL vann Lengjudeildina 2024.

Mynd: FHL

Höttur hefur sent KFA bréf og óskað eftir slitum á samstarfi um rekstur FHL, sem endaði í 6. sæti Lengjudeildar kvenna í sumar.
Samkvæmt aðildarsamningi Hattar og KFA tekur Höttur sæti félagsins við slit og mun því spila í Lengjudeildinni á næsta ári í stað FHL.
„Ástæður uppsagnarinnar eru ma. þær að megin þorri leikmanna koma frá Hetti og nú sé lag að spila meistaraflokki kvenna undir merkjum Hattar," segir meðal annars í tilkynningu frá Hetti.
„Hlökkum til nýs tímabils undir merkjum Hattar."