Fotbolti.net
22.10.26 - 21:16
Ívan Guðjón Baldursson

Sambandsdeildin: Jafnt hjá Daníel Leó - Kristian í sigurliði

Sambandsdeildin: Jafnt hjá Daníel Leó - Kristian í sigurliði
Canon

Mynd: AGF

Síðustu leikjum dagsins var að ljúka í Sambandsdeildinni og komu nokkrir Íslendingar við sögu.
Daníel Leó Grétarsson lék seinni hálfleikinn er Århus gerði aðeins jafntefli við albanska félagið Egnatia. Eric Kahl fékk beint rautt spjald snemma leiks og því léku heimamenn stærsta hluta leiksins einum færri.

Egnatia náði forystunni skömmu eftir rauða spjaldið en AGF jafnaði í upphafi síðari hálfleiks og komst nálægt því að gera sigurmark þrátt fyrir liðsmuninn. AGF er því komið með eitt stig eftir tvær fyrstu umferðir deildarkeppninnar.

Kristian Nökkvi Hlynsson kom þá inn af bekknum í þægilegum sigri FC Twente gegn Lincoln Red Imps í Gíbraltar. Wout Weghorst var meðal markaskorara í 1-4 sigri Twente og fékk Kristian að spila í rúman hálftíma. Twente er með sex stig eftir tvær umferðir.

FC Midtjylland tapaði heimaleik gegn St. Truiden frá Belgíu en Elías Rafn Ólafsson var ekki á sínum stað á milli stanganna vegna veikinda. Midtjylland er með eitt stig eftir að hafa gert jafntefli við Egnatia í fyrstu umferð.

Í öðrum leikjum kvöldsins hafði Ajax betur gegn lærlingum Maurizio Sarri í liði Atalanta á meðan Ansu Fati komst á blað í góðum sigri hjá AS Monaco gegn Freiburg og Gent tapaði fyrir Braga í Portúgal.

AGF Aarhus 1 - 1 Egnatia R
0-1 Ildi Gruda ('13 )
1-1 James Bogere ('49 )
Rautt spjald: Eric Kahl, AGF Aarhus ('3)

Lincoln 1 - 4 Twente
0-1 Thomas Van Den Belt ('19 )
0-2 Wout Weghorst ('24 )
1-2 Nano ('38 )
1-3 Thomas Van Den Belt ('57 )
1-4 Daouda Weidmann ('90 )

Midtjylland 0 - 1 Sint-Truiden
0-1 Frederic Soelle Soelle ('42 )

Ajax 2 - 0 Atalanta
1-0 Tolu Arokodare ('87 )
2-0 Abdellah Ouazane ('90 )

Monaco 3 - 0 Freiburg
1-0 Paris Brunner ('45 )
2-0 Lamine Camara ('83 )
3-0 Ansu Fati ('90 )

Braga 2 - 0 Gent
1-0 Victor Gomez ('3 )
2-0 Gabri Martinez ('76 )

Thun 0 - 1 Hajduk Split
0-1 Dalisson De Almeida ('17 )
0-1 Michele Sego ('68 , Misnotað víti)

Borac Banja Luka 2 - 0 KuPS
1-0 Stefan Savic ('29 )
2-0 Matej Deket ('50 )
Sambandsdeildin: Jafnt hjá Daníel Leó - Kristian í sigurliði
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.