22.10.26 - 20:34
Ívan Guðjón Baldursson
Elísa Viðars leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elísa Viðarsdóttir er búin að greina frá ákvörðun sinni um að leggja takkaskóna á hilluna eftir tæp 20 ár í meistaraflokki.

TENGT EFNI
Fékk ekki samninginn sem hún vildi, breytti til og varð Íslandsmeistari
Hún hóf ferilinn með uppeldisfélaginu ÍBV í Vestmannaeyjum og hélt svo til Kristianstad í eitt ár áður en hún snéri aftur til Íslands til að spila fyrir Val.
Elísa lék fyrir Val í heilan áratug áður en hún skipti til Breiðabliks fyrr á árinu og varð Íslandsmeistari með stórveldinu. Elísa lék mikilvægt hlutverk í liði Blika og tók þátt í hverjum einasta deildarleik í ár, en hefur ákveðið að láta gott heita.
Hún verður með Breiðabliki sem klárar Íslandsmótið á heimavelli gegn FH í dag og verður það hennar síðasti fótboltaleikur.
„Eftir mikla umhugsun hef ég þó ákveðið að nú sé komið að því að leggja skóna á hilluna. Ákvörðunin hefur ekki verið auðveld enda er ég að kveðja eitthvað sem hefur mótað mig sem manneskju og gefið mér svo ótrúlega mikið," segir Elísa meðal annars í færslu á Instagram.
„Þótt það sé ákveðinn söknuður að kveðja er hjartað fyrst og fremst fullt af þakklæti. Ég er stolt af því sem ég hef áorkað, stolt af vegferðinni og spennt fyrir því sem tekur við."
Elísa er fædd 1991 og lék 54 landsleiki fyrir Íslands hönd.