Fotbolti.net
23.10.26 - 11:30
Kári Snorrason

„Við erum ófeimnir við að spila okkar uppöldu strákum"

Marki gegn Stjörnunni fagnað.

Marki gegn Stjörnunni fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Tveir ungir og efnilegir Þórsarar skoruðu sín fyrstu mörk í Bestu deildinni síðasta laugardag þegar Þór vann Stjörnuna í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Mörkin voru í glæsilegri kantinum.

Það voru unglingalandsliðsmennirnir Sverrir Páll Ingason og Ásbjörn Líndal Arnarsson. Þeir spila í varnarlínu Þórs; Ási er miðvörður og Sverrir er hægri bakvörður.

Á móti Stjörnunni byrjuðu sjö uppaldir Þórsarar leikinn og tveir komu inn á.
Táningar opnuðu markareikninginn í Bestu með stórglæsilegum mörkum
TENGT EFNI

Táningar opnuðu markareikninginn í Bestu með stórglæsilegum mörkum

Þeir Aron Birkir Stefánsson, fyrirliði liðsins, og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, voru spurðir út í ungu strákana.

„Þetta er bara geggjað sko. Við erum ófeimnir við að spila okkar uppöldu strákum og það erfrábært að sjá þá vera að blómstra svona í efstu deild," sagði Aron Birkir.

Með tvo mjög efnilega leikmenn við hlið sér
Í vörn Þórs hefur Gyrðir spilað við hlið unglingalandsliðsmannanna. Hann var fyrst spurður út í Ása.

„Það er geggjað, hann er búinn að stíga virkilega vel upp í síðustu leikjum. Það er gaman að sjá hann stækka, taka meira til sín og verða betri. Það er virkilega gaman og ég samgleðst honum rosalega. Þetta er flottur fótboltamaður, á marga landsleiki, er mjög öflugur og á framtíðina fyrir sér. Það er gaman að hafa hann þarna við hliðina á mér og geta vonandi hjálpað honum. Hann hjálpar mér mikið þannig að þetta er bara frábært. Hann á mikið inni."

„Það er svo annar ungur hinu megin, ég er með tvo mjög unga við hliðina á mér. Þeir hafa stigið hrikalega vel upp, hafa sinnt öllu vel, bæði fram á við með bolta og varnarvinnunni. Þeir eru gríðarlega góðir varnarmenn, geta varist virkilega vel einn á einn. Það er mjög gott að hafa þannig leikmenn í liðinu."

„Sverrir átti frábæran leik síðast, hann þarf að byggja sinn leik upp og við eldri leikmennirnir þurfum að hjalpa honum, allir að hjálpa þeim að ná lengra. Þeir eru á réttri leið, eru frábærir leikmenn og frábærir karakterar líka, jarðbundnir strákar sem vilja vinna og vilja leggja vinnu á sig til að verða betri,"
sagði Gyrðir.
Sverrir Páll Ingason.

Sverrir Páll Ingason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ásbjörn Líndal.

Ásbjörn Líndal.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.