Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   þri 23. nóvember 2021 13:34
Elvar Geir Magnússon
Hrósar Cancelo í hástert
Joao Cancelo.
Joao Cancelo.
Mynd: EPA
Ilkay Gundogan hrósar samherja sínum, bakverðinum Joao Cancelo, í hástert en portúgalski landsliðsmaðurinn hefur skinið skært með Manchester City á tímabilinu.

Gundogan segir a Cancelo hafi bætt leik sinn. Cancelo er 27 ára portúgalskur bakvörður sem kom frá Juventus 2019.

„Á síðustu mánuðum hefur honum tekist að fækka mistökum sínum og margfalda það sem kemur út úr honum í hættulegum stöðum," segir Gundogan.

„Hann varla missir boltann og þegar hann er með boltann þá finnur hann alltaf lausnir, rekur boltann eða sendir hann á mikilvægum stundum."

„Það er verulega skemmtilegt að fylgjast með honum um þessar mundir. Hann er sóknarbakvörður en er sterkur einn gegn einum. Hann er mjög mikilvægur, skiptir okkur miklu máli. Vonandi getur hann haldið áfram á þessari braut því það hjálpar okkur að vinna fleiri leiki."

Sjá einnig:
Besta sending tímabilsins komin
Athugasemdir
banner
banner
banner