Fotbolti.net
22.11.26 - 18:23
Ívan Guðjón Baldursson

England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd

England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Liverpool 4 - 0 Manchester Utd
1-0 Dominik Szoboszlai ('10 )
2-0 Florian Wirtz ('13 )
3-0 Rio Ngumoha ('66 )
4-0 Victor Munoz ('83)
Rautt spjald: Leny Yoro, Manchester Utd ('8)
Tveimur undir og manni færri í fyrsta leik Pochettino
TENGT EFNI

Tveimur undir og manni færri í fyrsta leik Pochettino

Liverpool rúllaði yfir Manchester United er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag. Man Utd var að leika sinn fyrsta leik undir stjórn Mauricio Pochettino og lenti í áfalli snemma leiks þegar Leny Yoro braut af sér sem aftasti varnarmaður og fékk beint rautt spjald.

Yoro braut af sér eftir slæm mistök Matthijs de Ligt sem hleypti Alexander Isak framhjá sér og einum í gegn. Brotið var rétt fyrir utan vítateig og skoraði Dominik Szoboszlai beint úr aukaspyrnunni með föstu skoti lágt í markmannshornið.

Florian Wirtz tvöfaldaði forystuna skömmu síðar með glæsilegri afgreiðslu eftir frábæran undirbúning Rio Ngumoha og varði Senne Lammens nokkrum sinnum til að halda stöðunni í 2-0.

Rio Ngumoha skoraði þriðja mark Liverpool í síðari hálfleik eftir magnaðan undirbúning frá Bradley Barcola og kom Victor Munoz svo inn af bekknum til að innsigla 4-0 sigur eftir snyrtilega stoðsendingu frá Wirtz.

Bruno Fernandes fékk besta færi Rauðu djöflanna seint í uppbótartíma en Alisson Becker varði í horn.

Lokatölur urðu því 4-0 og er Liverpool komið upp í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar, með 21 stig eftir 11 umferðir - sjö stigum á eftir toppliði Arsenal.

Man Utd er í næstneðsta sæti deildarinnar með 8 stig.
England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd
Canon

Mynd: EPA

England: Auðvelt fyrir Liverpool gegn Man Utd
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+721
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-88
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.