Fotbolti.net
23.11.26 - 15:38
Elvar Geir Magnússon

Mikill vilji í Bestu deild kvenna til að fella úrslitakeppnina niður

Mikill vilji í Bestu deild kvenna til að fella úrslitakeppnina niður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Um helgina var kynning á vinnu spretthóps um framtíðarskipulag í Bestu deild kvenna. Hópurinn skilaði frá sér tveimur tillögum; halda núverandi fyrirkomulagi eða fjölga liðum og fella úrslitakeppnina niður.

Hópurinn slær varnagla við því að fjölgun sé tímabær, einkum vegna hugsanlegra neikvæðra áhrifa á deildirnar fyrir neðan.

„Með þessu fyrirkomulagi aukast jafnframt líkur á spennandi úrslitaleikjum um titil og fall, þar sem leikjaniðurröðun parar í lokin saman lið á svipuðum slóðum í töflunni," segir um núverandi fyrirkomulagi í skýrslunni.
Tillagan um breytingu á fyrirkomulaginu snýst um að fjölga liðum í deildinni úr tíu í tólf, leika tvöfalda umferð svo hvert lið leikur 22 leiki.

Fram kemur að mikill vilji sé meðal þjálfara og leikmanna til að fella úrslitakeppnina niður. Á móti mætti mögulega búast við fleiri ójöfnum leikjum fyrstu tímabilin vegna aukins getumunar.

Hér má sjá skýrsluna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.