23.12.14 - 10:05
Arnar Geir Halldórsson
Kevin Kampl til Dortmund (Staðfest)

Kampl í leik með Red Bull Salzburg

Mynd: Getty Images

Kampl í leik með Red Bull Salzburg

Mynd: Getty Images

Borussia Dortmund hefur gengið frá kaupum á slóvenska landsliðsmanninum Kevin Kampl frá Red Bull Salzburg.
Kaupverðið er óuppgefið. Dortmund vonast til þess að Kampl geti hjálpað liðinu að koma sér úr fallbaráttunni í Bundesligunni en Dortmund er í næstneðsta sæti deildarinnar.
Kevin Kampl hefur slegið í gegn með austurríska liðinu Red Bull Salzburg en þessi 24 ára gamli miðjumaður er fæddur og uppalinn í Þýskalandi þó svo að hann hafi valið að spila með slóvenska landsliðinu en hann á 14 landsleiki að baki fyrir Slóveníu.
,,Kampl er fjölhæfur sóknarsinnaður miðjumaður sem við höfum fylgst með lengi. Hann hentar okkar leikstíl fullkomnlega.\" sagði Michael Zorc, yfirmaður leikmannamála hjá Dortmund en samningur Kampl er til ársins 2019.
Kampl ólst upp hjá Bayer Leverkusen en náði ekki að brjóta sér leið inní aðalliðið þar og spilaði með liðum í neðri deildum Þýskalands þar til hann gekk í raðir Salzburg árið 2012.