Fotbolti.net
23.12.14 - 15:09
Arnar Geir Halldórsson

Nelson Oliveira til Swansea (Staðfest)

Nýjasti liðsfélagi Gylfa

Nýjasti liðsfélagi Gylfa

Canon

Mynd: Heimasíða Swansea

Swansea hefur gengið frá lánssamningi við Benfica um Nelson Oliveira og mun þessi portúgalski framherji spila með Swansea út þessa leiktíð.
Wilfried Bony er fyrsti framherji hjá Swansea en hann mun spila með Fílabeinströndinni í Afríkukeppninni í janúar og því framherjastaðan ansi þunnskipuð en Bafetimbi Gomis er eini sóknarmaður liðsins.

Oliveira er mættur til æfinga hjá Swansea en hann má ekki spila með liðinu fyrr en félagsskiptaglugginn opnar í janúar.

Þrátt fyrir að eiga 14 A-landsleiki fyrir Portúgal hefur Oliveira eytt mestum ferlinum á láni frá Benfica en hann hefur meðal annars spilað með Rennes og Deportivo La Coruna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.