Fotbolti.net
24.02.26 - 15:15
Elvar Geir Magnússon

Courtois: Við sem samfélag megum ekki vera það heimsk

Thibaut Courtois í fyrri leiknum.

Thibaut Courtois í fyrri leiknum.

Canon

Mynd: EPA

„Það er ekki hægt að nota fagnaðarlæti til að réttlæta rasisma. Við sem samfélag megum ekki vera það heimsk," segir Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid.

Vinicius Jr, leikmaður Madrídarliðsins, sakar Gianluca Prestianni, leikmann Benfica, um rasisma í sinn garð þegar liðin mættust í umspili Meistaradeildarinnar í síðustu viku.

Jose Mourinho, stjóri Benfica, gagnrýndi Vinicius fyrir það hvernig hann fagnaði markinu glæsilega sem hann skoraði og segir hann hafa ögrað stuðningsmönnum Benfica. Eftir fagnaðarlætin sagði Prestianni eitthvað við Vinicius.

„Mourinho er Mourinho og sem þjálfari þá verðu alltaf félagið sem þú starfar fyrir. En það truflar mig að fagnaðarlæti Vinicius séu notuð gegn honum. Hann gerði ekkert slæmt, hann fagnaði bara eins og margir leikmenn hafa gert gegn okkur," segir Courtois.
Mourinho nýtir rétt sinn og ræðir ekki við fjölmiðla
TENGT EFNI

Mourinho nýtir rétt sinn og ræðir ekki við fjölmiðla

Real Madrid fer inn í seinni leikinn gegn Benfica með 1-0 forystu eftir mark Vinicius. Seinni leikurinn verður á Santiago Bernabeu á morgun en Mourinho verður í banni þar eftir að hafa fengið rautt spjald seinna í fyrri leiknum.

Prestianni fékk eins leiks bráðabirgðabann frá UEFA og spilar ekki í leiknum á morgun. Argentínumaðurinn tvítugi neitar því að hafa verið með rasísk ummæli og fær stuðning félags síns.

„Ég er 100% viss um að Vini hafi heyrt þetta. Ég trúi honum fullkomlega," segir Courtois.
Mourinho sakaði Vinicius Jr um að fagna með ögrandi hætti.

Mourinho sakaði Vinicius Jr um að fagna með ögrandi hætti.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.