Fotbolti.net
24.02.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Telur að 40-60 stig gætu verið dregin af Man City

Ferran Soriano framkvæmdastjóri Manchester City og formaðurinn Khaldoon Al Mubarak.

Ferran Soriano framkvæmdastjóri Manchester City og formaðurinn Khaldoon Al Mubarak.

Canon

Mynd: EPA

Ef Manchester City verður dæmt sekt um alvarlegustu ásakanirnar á hendur sér gætu 40-60 stig verið dregin af liðinu, að mati Kieran Maguire sem er sérfræðingur í fótboltafjármálum.

Beðið er eftir niðurstöðum í þeim 115 ákærum sem City fékk vegna meintra fjármálabrota í ensku úrvalsdeildinni milli 2009 og 2018. Málin hafa verið í kerfinu í þrjú ár.

City hefur neitað að hafa gert eitthvað rangt og eru forráðamenn félagsins sagðir búast við því að vera hreinsaðir af sök.
Glórulaust hversu langan tíma Man City málið tekur
TENGT EFNI

Glórulaust hversu langan tíma Man City málið tekur

Ekki hægt að fella liðið beint niður
Maguire telur að niðurstaða ætti að koma á næstu mánuðum en nær ómögulegt sé að spá í hver hún verði.

„Úrvalsdeildin getur ekki fellt Manchester City því það yrði að vera ákvörðun ensku deildarinnar (EFL). Þar af leiðandi yrði niðurstaðan stigafrádráttur," segir Maguire við The Overlap.

Hann segir að ef miðað er við stigarefsingu sem Nottingham Forest og Everton hafa fengið þá sé hægt að margfalda þær refsingar til að giska á mögulega útkomu fyrir City.

„Ásakanirnar á hendur City ná yfir níu ára tímabil svo ef félagið verður dæmt gætum við séð 40-60 stig dregin af því."

Þá segir Maguire að stjórn Manchester City þyrfti að segja af sér ef félagið verður dæmt sekt um alvarlegustu ásakanirnar.
Telur að 40-60 stig gætu verið dregin af Man City
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1817
4Chelsea8+213
5Liverpool8+113
6Brentford8+511
7Aston Villa8-311
8Leeds7+310
9Hull City8+110
10Everton8-110
11Ipswich Town8-410
12Tottenham8-29
13Newcastle8-49
14Man Utd808
15Fulham8-28
16Crystal Palace8-88
17Bournemouth8-47
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.