Atalanta og Fiorentina eigast við í síðari leik liðanna í undanúrslitum ítalska bikarsins í kvöld.
Fiorentina vann fyrri leikinn með einu marki gegn engu í Flórens, en síðari leikurinn er spilaður klukkan 19:00 í Bergamó.
Flórensarliðið getur komist í úrslit í annað sinn í röð. Atalanta spilaði síðast til úrslita 2021, en það hefur aðeins einu sinni unnið bikarinn, árið 1963.
Leikur dagsins:
19:00 Atalanta - Fiorentina
Athugasemdir