„Bara frábær tilfinning, alltaf gaman að vinna leiki.'' segir Einar Guðnason, þjálfari Víkings, eftir 2-1 sigur gegn Stjörnunni í 1. umferð Bestu deild kvenna.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 1 Stjarnan
„Þetta var jafn leikur, við fengum kannski betri færi en mér fannst við aldrei vera með leikinn. Þetta var kaótískur leikur, þannig þær voru alltaf hættulegar,''
Það var mikill hiti í leiknum og voru þjálfara báða liðana að öskra í hvort annað og í dómarana.
„Þetta var nú bara eitt skipti sem ég var eitthvað að reiða mig og já ég veit það ekki. Ég var hérna í einhverju öðru viðtali að tuða yfir því líka, eða ég var ekki að tuða en það er alltaf verið að spyrja mig. Mér fannst hann annaðhvort flauta allt of snemma eða sjá annan lit á spjaldið, því Freyja var sloppin í gegn og fer niður fyrir utan teig og boltinn hrekkur til Jasmínar sem var inn í vítateig ein á móti markmanni en dómarinn flautar. Ég hefði örugglega verið vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið leikinn,''
Víkingar eru spáðir þriðja sæti í deildinni hjá okkur í Fótbolta.net.
„Mér er nett sama um það sko, við ætlum að gera okkar sama hvað eitthvað fólk út í bæ heldur,''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.

























