Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 12:50
Kári Snorrason
Ekkert grín að koma sér í stand eftir mataræðið í Kína
Elías Már Ómarsson.
Elías Már Ómarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi í Kína.
Sölvi í Kína.
Mynd: Guangzhou R&F
Elías Már Ómarsson fór á kostum í liði Víkings í gær er hann skoraði tvö mörk í 3-2 sigri á Stjörnunni. Hann var valinn sterkasti maður 3. umferðar hér á Fótbolta.net fyrir frammistöðu sína.

Elías gekk til liðs við Víking rétt fyrir áramót frá kínverska liðinu Meizhou Hakka. Það fór lítið fyrir Elíasi á undirbúningstímabilinu en hann hefur nú skorað þrjú mörk í jafn mörgum leikjum í Bestu deildinni.

Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, um Elías eftir sigurinn í gær.

„Við vitum gæðin sem Elías býr yfir. Við töldum að það myndi henta honum vel að byrja þennan leik. Sem betur fer höfðum við rétt fyrir okkur. Elías er búinn að vinna hart í að koma sér í stand. Það er ekkert grín að vera á mataræðinu í Kína. Ég hef sjálfur prófað það. Þetta er flestallt djúpsteikt,“ segir Sölvi en hann spilaði í Kína í um þrjú ár með fjórum mismunandi liðum.

„Það tók sinn tíma fyrir hann að komast í gang. Líka að komast í nýtt lið og að venjast hlutunum sem við erum að gera hérna í Víkinni. Hann er búinn að vera mjög faglegur með allt það og komið sér vel inn í þetta. Hann sýndi hvers megnugur hann er í dag. Sjóðheitur fyrir framan markið, ég er virkilega ánægður fyrir hans hönd,“ sagði Sölvi að lokum.
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Slapp
banner
banner
banner