Landsliðsmaðurinn Andri Fannar Baldursson er á sínu fyrsta tímabili með Kasimpasa í tyrknesku úrvalsdeildinni. Andri, sem er 24 ára miðjumaður, var keyptur til félagsins frá Bologna í sumar. Hann er í stóru hlutverki í liðinu og spilar nánast alltaf 90 mínútur í hverri umferð.
Hann ræddi við Fótbolta.net í vikunni eftir að hafa verið maður leiksins gegn Alanyaspor um síðustu helgi. Með sigrinum fór Kasimpasa nokkuð langt með að halda sæti sínu í deildinni.
Hann ræddi við Fótbolta.net í vikunni eftir að hafa verið maður leiksins gegn Alanyaspor um síðustu helgi. Með sigrinum fór Kasimpasa nokkuð langt með að halda sæti sínu í deildinni.
Lið sem á að vera í efri hlutanum
„Við erum á góðu skriði núna, erum með alltof gott lið til að vera í þessu brasi sem við höfum verið á tímabilinu," segir Andri Fannar sem vill meina að Kasimpasa eigi að vera í efri hluta deildarinnar.
„Það er búin að vera óreiða hjá félaginu í vetur, það urðu eigendaskipti og þjálfaraskipti en núna erum við búnir að finna taktinn og höfum spilað vel í síðustu leikjum."
Liðið er sex stigum frá fallsvæðinu þegar fjórar umferðir eru eftir og á Kasimpasa leik núna klukkan 17:00 gegn Basaksehir á útivelli. Andri er á sínum stað í byrjunarliði liðsins.
Maður leiksins í síðasta leik
Andri er ánægður með lífið í Istanbúl og sáttur við eigin spilamennsku.
„Það kom mér aðeins á óvart þegar ég kom að ég komst strax í stórt hlutverk, ég hafði ekki spilað fótbolta í nokkuð langan tíma þegar ég kom en ég var fljótur að komast í takt og er mjög sáttur með mitt hlutverk á þessu tímabili."
„Ég var meðvitaður að ég var að eiga góðan leik gegn Alanyaspor, leið vel inni á vellinum, en ég er ekki mikið að skoða einkunnir eftir leiki eða slíkt. Ég skoða auðvitað þau gögn sem leikgreinandinn sýnir mér en reyni ekki að spá mikið í öðru."
Akkúrat það sem hann á að gera
Andri er efstur í deildinni þegar kemur að því að vinna boltann af andstæðingnum.
„Já, ég sá þennan lista eftir leikinn og það er klárlega mjög gaman að sjá að það gengur vel í því sem er akkúrat það sem ég að að gera á vellinum. Ég er eina sexan í liðinu, smá ruslakall og á að gera nákvæmlega þetta."
Süper Lig'de en fazla top çalan oyuncular:
— Futbol Verileri (@futbolverileri) April 21, 2026
? Andri Baldursson: 69
? ?smail Yüksek: 68
? Kevin Rodrigues: 66 pic.twitter.com/XZ7IONHuZV
Munur að vera í eigu félagsins
Andri hafði síðustu ár verið á láni frá ítalska félaginu Bologna, hann fór til FCK, NEC Nijmegen og Elfsborg en hann finnur fyrir því að það sé munur að vera í eigu félagsins sem hann er hjá.
„Mér líður eins og það sé hugsað extra vel um mann, og ég skil alveg að það sé þannig, ég er ekki að segja að það hafi ekki hugsað vel um mig hjá hinum félögunum, en það er eitthvað extra sem ég finn. Lífið í Istanbúl er mjög gott, aðstaðan hjá félaginu er sturluð, mér og kærustunni líður vel hér, ánægð með heimilið okkar, ég fæ alltaf borgað á réttum tíma, lífsgæðin eru góð, og ég myndi segja að það þyrfti svolítið mikið til að fá mig héðan."
„Istanbúl er auðvitað ótrúlega stór borg, vel yfir 100 verslunarmiðstöðvar svo eitthvað sé nefnt og borgin er í raun endalaust stór. En mér líkar vel hérna, ég er með einkabílstjóra og við búum í hverfi þar sem er gott eftirlit þannig það er ekki yfir neinu að kvarta."
Ótrúleg upplifun gegn Fener
Andri segir að stuðningsmenn Kasimpasa gætu verið fleiri og látið heyra meira í sér, en hann sýnir því skilning að slæmt gengi á tímabilinu hjálpi ekki í þeim efnum.
„Stemningin þegar við höfum mætt stórliðunum hefur verið mögnuð. Ætli það rosalegasta hafi ekki verið gegn Fenerbahce núna í febrúar. Þeir skoruðu, komust í 1-0 á 95. mínútu, og allir trylltust úr fögnuði í stúkunni. En svo náðum við að jafna á elleftu mínútu uppbótartíma og það kom algjör þögn. Það var ótrúleg upplifun. Minnti örugglega á þegar íslenska landsliðið þaggaði niður í Tyrkjunum um árið."
Fyrrum liðsfélagi Óla Skúla komið vel inn
Tvær þekktar stærðir gengu í raðir Kasimpasa í glugganum á láni frá Fenerbahce. Það voru þeir Cenk Tosun og Irfan Kahveci.
„Maður sér alveg að þeir hafa verið að spila á mjög háu stigi. Ég kannaðist við Tosun eftir tíma hans hjá Everton og í tyrkneska landsliðinu. En ég viðurkenni að ég þekkti ekki til Irfan. Þegar hann mætti á æfingar sá maður hversu fáránlega góður hann er og hann hefur mjög góður fyrir okkur. Irfan spilaði á sínum tíma með Ólafi Inga Skúlasyni hjá Genclerbirligi og ég hef aðeins verið að ræða það við hann," segir Andri Fannar. Irfan skoraði einmitt sigurmarkið gegn Alanyaspor um síðustu helgi.
Heiður að vera valinn í landsliðið
Andri Fannar sneri aftur í landsliðið í október síðastliðnum eftir að hafa ekki verið í A-landsliðinu fyrri hluta ársins. Hann á að baki 12 leiki með liðinu, kom við sögu í báðum leikjunum í mars.
„Það er alltaf mikill heiður að vera valinn í landsliðið og ótrúlega gaman að vera með strákunum í verkefnunum. Ég nýt þess að æfa með þeim og vera með þeim. Ég hugsa þetta þannig að ég geri mitt besta með félagsliðinu og þá vonandi skilar sér það í landsliðið, það og að grípa sénsinn þegar hann kemur, ekkert annað sem ég get gert."
„Mér finnst ég vera öðruvísi týpa af miðjumanni en þeir sem eru í hópnum og gæti hjálpað liðinu með mínum styrkleikum. Við erum með ótrúlega góða miðjumenn í hópnum," segir Andri Fannar að lokum.



