Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fös 24. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Mikilvægir slagir og undanúrslit
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það er nóg um að vera í enska boltanum um helgina þar sem úrvalsdeildin fer af stað með viðureign Sunderland gegn Nottingham Forest í kvöld.

Á morgun eru svo mikilvægir slagir á dagskrá. Þar má helst nefna fallbaráttuleik Tottenham á útivelli gegn Wolves og heimaleiki hjá Liverpool og Arsenal gegn erfiðum andstæðingum.

Liverpool getur svo gott sem tryggt sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð með sigri gegn Crystal Palace á meðan Arsenal þarf sigur gegn Newcastle í titilbaráttunni.

Manchester City og Southampton eigast þá við í undanúrslitaleik enska bikarsins á sama tíma og Arsenal spilar sinn leik við Newcastle.

Á sunnudaginn mætast Chelsea og Leeds United í hinum undanúrslitaleik bikarsins.

Manchester United tekur að lokum á móti Brentford á mánudagskvöldið.

Föstudagur:
19:00 Sunderland - Nott. Forest

Laugardagur:
11:30 Fulham - Aston Villa
14:00 Liverpool - Crystal Palace
14:00 West Ham - Everton
14:00 Wolves - Tottenham
16:30 Arsenal - Newcastle

Enski bikarinn
16:15 Man City - Southampton

Sunnudagur:
Enski bikarinn

14:00 Chelsea - Leeds

Mánudagur:
19:00 Man Utd - Brentford
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
2 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner