Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 16:30
Kári Snorrason
„Hræðilega erfitt að vera 3-0 undir í hálfleik í frumrauninni í meistaraflokki“
Róbert í baráttunni við Adam Ægi Pálsson.
Róbert í baráttunni við Adam Ægi Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson
Einn af fáum jákvæðum punktum í liði FH í 3–0 tapi gegn Val í gær var að hinn sextán ára gamli Róbert Hugi Sævarsson lék allan leikinn á Hlíðarenda.

Valur var komið í þriggja marka forystu í hálfleik og leikurinn svo gott sem búinn þegar Vilhjálmur Alvar flautaði til leikhlés eftir 45 mínútur.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var spurður út í hinn efnilega Róbert að leik loknum.

Lestu um leikinn: Valur 3 -  0 FH

„Ég held að þegar þú horfir á hann spila sé ekki það fyrsta sem þú hugsar að hann sé fæddur 2010, því hann er hörkuduglegur, góður á boltanum, mjög rólegur og yfirvegaður í hans leik.

Auðvitað er það hræðilega erfitt að taka þátt í fyrsta leik í meistaraflokki hjá FH og vera 3-0 undir í fyrri hálfleik. Hann sýndi ansi sterkar taugar í seinni hálfleiknum, þorir alltaf að fá boltann, sýnir fram á við og er hörkumiðjumaður sem á framtíðina fyrir sér,“
sagði Jói Kalli að lokum.



Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Slapp
banner
banner