Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 18:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kæmi „stórkostlega á óvart" ef hún verður seld fyrir gluggalok
Kvenaboltinn
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir.
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik hjá Stjörnunni á síðasta tímabili.
Fyrir leik hjá Stjörnunni á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir er stjarnan í liði Stjörnunnar fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Það telja margir að Úlfa Dís verði einn besti leikmaður deildarinnar, ef ekki bara sá allra besti.

Hún verður í eldlínunni á eftir þegar Stjarnan mætir Víkingi í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.

Úlfa hefur alla burði til að vera einn besti framherjinn í þessari deild. Hún verður samningslaus eftir tímabilið og hafa heyrst einhverjar sögur um framtíð hennar, en er einhver möguleiki á því að hún verði seld áður en glugginn lokar núna?

„Það kæmi mér á óvart," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum og spurði Magnús Haukur Harðarson þá: „Hvað ef Valur kæmi með 5 kúlur á borðið?

„Ég var hluti af þjálfarateymi Stjörnunnar í fyrra og Valur bauð háa upphæð í hana. Stjarnan tók það ekki í mál. Ef það á að gera betur en í fyrra - það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að það er sótt nýtt þjálfarateymi - þá hlýtur að eiga halda þessum leikmanni. Það kæmi mér stórkostlega á óvart (ef hún verður seld) og ég sé ekki tilboð koma frá neinu öðru félagi en Val upp á svona fjárhæð."

Getur hún verið best í deildinni? „Alveg 100%," sagði Arnar Páll „Fyrir mér er hún einstakur leikmaður. Hún er einn af þeim leikmönnum sem brýtur upp deildina. Það á allt að snúast um þennan leikmann þegar kemur að sóknarleik Stjörnunnar."

Hægt er að horfa og hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan


Slapp
banner
banner
banner