Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 11:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Loki sló met Eiðs Smára í gær
Mynd: Toggipop
Loki Kristjánsson (2011) kom inn á sem varamaður hjá Val þegar liðið lagði FH að velli í Bestu deildinni í gær. Loki kom inn á undir lok leiks og lék sínar fyrstu mínútur í efstu deild á ferlinum.

Hann er mikið efni, U15 landsliðsmaður sem er undir smásjá danska stórliðsins Midtjylland.

Lestu um leikinn: Valur 3 -  0 FH

Kristján Gylfi Guðmundsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, vakti athygli á því í gær að Loki hefði líklega slegið met Eiðs Smára Guðjohnsen í leiknum og Víðir Sigurðsson, fyrrum fréttastjóri íþróttadeildar Morgunblaðsins, staðfesti það svo. Eiður Smári (1978) setti metið tímabilið 1994 Loki er nú orðinn sá yngsti sem hefur spilað deildarleik með Val.

Loki er 15 ára og 13 daga gamall, Eiður Smári lék sinn fyrsta leik 15 ára og 250 daga gamall.

Loki gerði sinn fyrsta samning við Val fyrr í vor og hefur verið í hópnum í öllum leikjum liðsins.
Slapp
banner
banner