Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðablik, var afar sátt eftir 2-0 sigur á Þrótti í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.
„Frábært að byrja mótið á sigri, fyrst og fremst það. Gott líka að mér fannst frammistaðan hjá okkur vera bara mjög öflug. Ég er mjög sátt,“ sagði Agla María eftir leik.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Þróttur R.
„Mjög jákvætt að við fáum síðan Bryndísi inn í þetta núna á seinustu mínúturnar. Gott að sjá hana inn á vellinum.“
Bryndís Arna Níelsdóttir kom inn á undir lok leiks í sínum fyrsta leik fyrir félagið en hún hefur ekkert spilað á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla. Þá nefndi Agla María breiddina sem kæmi inn með Ólöfu Sigríði.
„Svo kemur Olla inn í þetta til okkar og það svona eykur breiddina hjá okkur.“
Talsverðar breytingar hafa orðið á Blikaliðinu frá síðasta tímabili, þar sem yngri leikmenn hafa tekið stærra hlutverk. Að mati fyrirliðans er það einfaldlega spurning um gæði.
„Mér finnst frábært að þær séu að fá tækifærið og traustið. En þær eru líka bara nógu góðar til þess að spila. Ég held að það skipti öllu máli.“
„Mér finnst oft umræðan vera þannig að ungir leikmenn eigi að spila en þeir eiga bara að spila ef þeir eru nógu góðir. Þær eru svo sannarlega nógu góðar og hafa sýnt það.“
„Frábært að þær séu að fá sénsinn og þær hafa sannarlega gripið tækifærið.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.























