„Tilfinningin er viðbjóðsleg, ég er bara pirraður og fúll,'' segir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 2-1 tap gegn Víking í 1. umferð Bestu deild kvenna.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 1 Stjarnan
„Við bara byrjum leikinn 1-0 undir, það þarf að skoða það vel og vandlega af hverju því við snertum ekki boltann og allt í einu var staðan 1-0 eftir 30 sekúndur. Eftir það fannst mér við vera töluvert sterkari,''
Óskar var að stýra sinn fyrsta deildarleik fyrir Stjörnuna.
„Ég elska að vera hérna, mér líður eins og ég eigi að vera hérna og bara elska þetta lið. Þótt að við höfum tapað fyrsta leik þá held ég að það verður ekkert 'end of the world',''
„Maður sá að bæði lið vildu mikið vinna og það var mikill djöflagangur og karakter í báðum liðum. Eins við þjálfarnir erum, við vorum bara að rífast og ég var að rífa kjaft og Jón Páll var að rífa kjaft, hann rífur reyndar ekki eðlilega mikið kjaft,''
„Ég held að þessi leikur hafi verið frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild. Jafnt milli tveggja góðra liða og datt öðrum megin í dag. Anna fyrirliði minnti mig á það í gær að 2014 þegar Stjarnan varð Íslandsmeistarar þá töpuðu þau fyrsta leik og unnu rest, við stefnum bara á að vinna rest.''
Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.























