Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir átti eftirminnilegan dag þegar Breiðablik hóf tímabilið með 2-0 sigri á Þrótti. Hún var heiðruð fyrir leik fyrir 100 leiki fyrir félagið og toppaði daginn með marki.
„Bara mjög góðar, það er gríðarlega mikilvægt og sterkt að byrja á sigri,“ sagði Ása eftir leik.
„Það er auðvitað alltaf gaman að skora en markmiðið er náttúrulega bara að hjálpa liðinu að vinna leikinn fyrst og fremst. Ég er gríðarlega stolt af því að spila 100 leiki fyrir félagið.“
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Þróttur R.
Hún segir stemninguna í hópnum vera afar góða þrátt fyrir breytingar frá síðasta tímabili.
„Andinn er mjög góður. Það er alltaf góð stemming hjá okkur og gríðarlega gaman hvað það eru margar ungar stelpur sem eru að fá tækifæri.“
Að hennar mati skiptir lykilmáli að blanda saman reynslu og yngri leikmönnum, þar sem yngri leikmenn læra af þeim eldri, á borð við Öglu Maríu Albertsdóttur og Elísu Viðarsdóttur.
„Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt að hafa þessa blöndu í liðinu. Við yngri getum lært af þeim eldri og þær kenna okkur rosalega margt.“
Þrátt fyrir öruggan sigur var hún ekki alveg sátt með nýtingu færa.
„Við hefðum náttúrulega átt að vera löngu búnar að klára þennan leik. Það er ekki gott að vera bara með 2-0 í forystu, það getur breyst mjög hratt.“
„Ég klúðraði alveg þó nokkrum færum sem ég hefði átt að gera betur í, en gott að við náðum að sigla þessu í land.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
























