Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
mánudagur 27. apríl
Besta karla
laugardagur 25. apríl
Lengjudeild karla
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 24. apríl
Championship
Leicester - Millwall - 19:00
Úrvalsdeildin
Sunderland - Nott. Forest - 19:00
1. deild
Brest - Lens - 18:45
Bundesligan
RB Leipzig - Union Berlin - 18:30
Frauen
Nurnberg W 0 - 0 Hamburger W
Serie A
Napoli - Cremonese - 18:45
Toppserien - Women
Aalesund W 1 - 0 Rosenborg W
La Liga
Betis - Real Madrid - 19:00
Elitettan - Women
Alingsas W - Goteborg W - 17:00
fös 24.apr 2026 15:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 1. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Breiðablik mundi enda í fyrsta sæti Bestu deildar kvenna í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir röðuðu liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær tíu stig, annað sæti níu og svo koll af kolli niður í tíunda sæti sem gefur eitt stig. Breiðablik mun verja Íslandsmeistaratitil sinn ef spáin rætist.

Því er spáð að Blikar muni verja titilinn.
Því er spáð að Blikar muni verja titilinn.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ian Jeffs er nýr þjálfari Blika.
Ian Jeffs er nýr þjálfari Blika.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Agla María er stórkostlegur leikmaður.
Agla María er stórkostlegur leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elín Helena er í lykilhlutverki.
Elín Helena er í lykilhlutverki.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrafnhildur Ása er búinn að vera mögnuð í vetur.
Hrafnhildur Ása er búinn að vera mögnuð í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristín Dís er einn besti varnarmaður deildarinnar.
Kristín Dís er einn besti varnarmaður deildarinnar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður spennandi að fylgjast með Herdísi Höllu.
Það verður spennandi að fylgjast með Herdísi Höllu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bryndís Arna skrifaði undir í Kópavoginum.
Bryndís Arna skrifaði undir í Kópavoginum.
Mynd/Breiðablik
Edith mun fá stærra hlutverk í sumar.
Edith mun fá stærra hlutverk í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Barbára er öflug í bakverðinum.
Barbára er öflug í bakverðinum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elísa Viðarsdóttir er mætt í grænt.
Elísa Viðarsdóttir er mætt í grænt.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Verður Breiðablik meistari þriðja árið í röð?
Verður Breiðablik meistari þriðja árið í röð?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. Breiðablik, 99 stig
2. FH, 92 stig
3. Víkingur R., 74 stig
4. Stjarnan, 70 stig
5. Þróttur R., 69 stig
6. Valur, 61 stig
7. Þór/KA, 43 stig
8. ÍBV, 34 stig
9. Grindavík/Njarðvík, 21 stig
10. Fram, 17 stig

Um liðið: Breiðablik fer inn í tímabilið sem ríkjandi Íslands- og bikarmeistari og er spáð efsta sætinu á ný. Liðið var í sérflokki á síðasta tímabili, vann tvöfalt og sýndi yfirburði sem fá lið hafa náð að endurtaka. Það er því eðlilegt að væntingarnar séu áfram gríðarlegar í Kópavoginum. Samt sem áður hefur mikið breyst frá því í fyrra. Nokkrir lykilleikmenn hafa fært sig um set og haldið erlendis, og þá hefur breyting orðið á þjálfarateyminu. Slíkar umbreytingar geta haft áhrif, sérstaklega þegar um er að ræða lið sem var eins og vel smurð vél. Á móti kemur að nýir leikmenn hafa bæst í hópinn og spennandi ungir leikmenn eru að stíga næstu skref, sem gæti gefið liðinu nýja vídd. Undirbúningstímabilið hefur gefið jákvæð fyrirheit. Breiðablik hefur fundið góðan takt undanfarið og unnið bæði Lengjubikarinn og Meistarakeppni KSÍ, sem bendir til þess að liðið sé fljótt að ná saman þrátt fyrir breytingarnar. Stóra spurningin er hvort þeim takist að viðhalda sömu yfirburðum og í fyrra eða hvort samkeppnin verði harðari í sumar. Breiðablik fer inn í mótið sem liðið sem allir vilja fella af stalli.

Þjálfarinn: Nik Chamberlain gekk býsna vel sem þjálfari Breiðabliks og ákvað félagið bara að ráða annan Breta því Ian Jeffs er mættur til starfa. Jeffsy, eins og hann er kallaður, er þó í raun bara orðinn Íslendingur í dag, hann hefur verið hér nánast samfleytt frá 2003 þegar hann kom sem leikmaður til ÍBV. Hann byrjaði þjálfaraferil sinn sem þjálfari kvennaliðs ÍBV og gerði þær að bikarmeisturum sem var frábært afrek. Hann var svo aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins áður en hann gerðist þjálfari karlaliðs Þróttar og síðast var hann með Hauka í 2. deild. Hann og þjálfarateymi hans eru að stíga í stór fótspor og pressan er mikil. Jeffsy og Nik eru mjög öðruvísi karakterar og þjálfarar, og verður áhugavert að fylgjast með nýju teymi í Kópavoginum.

Álit Magga
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson er sérfræðingur Fótbolta.net í Bestu deild kvenna. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan. Magnús verður með hlaðvarpsþáttinn Uppbótartímann á Fótbolta.net í sumar þar sem farið verður yfir kvennaboltann á Íslandi á mannamáli.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Voru og eru bestar
„Hágæða leikmenn hafa yfirgefið liðið en á sama tíma hafa ungir og efnilegir leikmenn stigið upp á undirbúningstímabilinu og fer Hrafnhildur Ása fremst í flokki."

„Nik kvaddi fyrir Sviþjóð og Ian Jeffs tók við sem mörgun fannst skrítið en hann hefur allavega sýnt það hingað til að hann sé rétti maðurinn í starfið."

„Þetta er tímabilið sem Elín Helena verður langbesti varnarmaðurinn og tekur skrefið í atvinnumennskuna eftir tímabilið. Leiftrandi sóknarbolti þar sem bakvörðurinn Barbára Sól hefur verið að raða inn mörkum."

„3peat, já takk."


Lykilmenn: Elín Helena Karlsdóttir og Agla María Albertsdóttir
Elín Helena tók gríðarlega jákvæð skref fram á við í fyrra og kom sér meðal annars inn í landsliðshópinn með frammistöðu sinni. Hún er frábær miðvörður með mikinn hraða. Hún kemur til með að leiða varnarlínu Breiðabliks með frábæra leikmenn við hliðina á sér í hjarta varnarinnar í þeim Kristínu Dís Árnadóttur og Elísu Viðarsdóttur. Þær eru báðar mjög reynslumiklar, sterkir karakterar og með mikil gæði. Svo ertu með Öglu Maríu Albertsdóttur framar á vellinum en hún er í raun svindlleikmaður í þessari deild og ætti ekkert að vera að spila hérna. Hún getur tekið yfir leiki með gæðum sínum og verður einn allra besti leikmaður deildarinnar í sumar. Það er bara hægt að bóka það í rauninni.

Gaman að fylgjast með: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Ása, eins og hún er alltaf kölluð, hefur verið að koma inn hér og þar hjá Breiðabliki síðustu tímabil. Í sumar verður hún í mun stærra hlutverki. Hún hefur verið gjörsamlega mögnuð í vetur á undirbúningstímabilinu og verður gríðarlega spennandi að sjá hana í sumar. Þarna eru mikil gæði og þakið er ótrúlega hátt hjá þessum bráðefnilega leikmanni sem fædd er árið 2006. Þetta gæti svo sannarlega verið hennar ár. Það verður líka mjög spennandi að fylgjast með Herdísi Höllu fá tækifærið í markinu. Mjög efnilegur markvörður þar á ferðinni.

Komnar:
Bryndís Arna Níelsdóttir frá Svíþjóð
Taylor Kane frá Bandaríkjunum
Elísa Viðarsdóttir frá Val
Katelyn Duong frá Bandaríkjunum
Mikaela Nótt Pétursdóttir frá FHLk
Olga Ingibjörg Einarsdóttir frá Fram (var á láni)

Farnar:
Andrea Rut Bjarnadóttir til Anderlecht
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir til Parma
Birta Georgsdóttir til Genoa
Heiða Ragney Viðarsdóttir til Eskilstuna
Heiðdís Lillýardóttir hætt
Jakobína Hjörvarsdóttir alfarið í Stjörnuna (var á láni)
Helga Rut Einarsdóttir í Val
Katherine Devine
Katrín Ásbjörnsdóttir hætt
Kyla Elizabeth Burns í KR
Samantha Smith til Boston Legacy
Sara Svanhildur Jóhannsdóttir alfarið í Fram (var á láni)
Kristín Magdalena Barboza í Fram (var á láni hjá Haukum)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir ólétt



Fyrstu fimm leikir Breiðabliks:
24. apríl, Breiðablik - Þróttur R. (Kópavogsvöllur)
29. apríl, Breiðablik - Fram (Kópavogsvöllur)
6. maí, Víkingur R. - Breiðablik (Víkingsvöllur)
11. maí, Fram - Breiðablik (Lambhagavöllurinn)
20. maí, Þór/KA - Breiðablik (VÍS völlurinn)

Spámennirnir: Alexander Tonini, Alexandra Bía Sumarliðadóttir, Anton Freyr Jónsson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Kári Snorrason, Magnús Haukur Harðarson, Snæbjört Pálsdóttir, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
banner