Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar var eðlilega svekkt eftir 0-2 tap gegn Breiðablik í fyrsta leik Bestu deildarinnar.
„Auðvitað bara svekkjandi. Þetta eru alltaf hörkuleikir á móti Breiðabliki og leikir sem við viljum virkilega vinna,“ sagði Álfhildur eftir leik.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Þróttur R.
Hún segir ákveðna spennu alltaf fylgja fyrsta leik tímabilsins.
„Fyrsti leikur, alltaf ákveðin spenna í loftinu og þetta er pínu spennufall eftir á. Auðvitað hefðum við allavega viljað ná stigi í leiknum og skora mark en það datt einhvern veginn ekki í dag.“
Þrátt fyrir tapið sér hún þó ýmis jákvæð teikn í leik liðsins.
„Mér finnst við líta vel út og í leikjunum fyrir mót. Við erum með góða leikmenn og góða liðsheild. Við erum með allt með okkur, við þurfum bara einhvern veginn að vinna þessa leiki og skora þessi mörk.“
Álfhildur staðfesti einnig að meiðsli hefðu haft áhrif á hópinn, en hin efnilega Björg Gunnlaugsdóttir var skráð í liðsstjórn í dag.
„Já það eru smá meiðsli hjá Björgu því miður. Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana eins og í þessum leik en það er ekkert langt í hana og hún nær sér fljótt.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.






















