Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. maí 2020 20:48
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður Fulham orðaður við Real Madrid
Andre Zambo Anguissa
Andre Zambo Anguissa
Mynd: Getty Images
Andre Zambo Anguissa, leikmaður Fulham á Englandi, er þessa dagana orðaður við spænska stórliðið Real Madrid en hann ræðir þennan orðróm við Canal +.

Anguissa er 24 ára gamall miðjumaður frá Kamerún en hann lék með franska liðinu Marseille í þrjú ár áður en hann var keyptur til Fulham árið 2018.

Fulham var þá að spila í úrvalsdeildinni en hann féll með liðinu niður í B-deildina og var svo lánaður til Villarreal fyrir þetta tímabil.

Hann hefur gert góða hluti á Spáni og er talið að Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, hafi áhuga á því að fá hann í sumar en Anguissa vildi þó lítið tjá sig um það.

„Ég get ekki staðfest neitt. Ég er ekki maður sem hlustar á orðróma. Ég og umboðsmaðurinn minn erum með samning. Hann stýrir öllu sem gerist í kringum mig og ég einbeiti mér að fótboltanum," sagði Anguissa.
Athugasemdir
banner
banner