Þjálfarinn Régis Le Bris hefur unnið þrekvirki á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni. Hann kom upp úr Championship deildinni með Sunderland í fyrrasumar og náði að tryggja liðinu sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar með sigri gegn Chelsea í lokaumferð úrvalsdeildartímabilsins sem fór fram í dag.
Það bjóst enginn við að Sunderland kæmist nálægt Evrópubaráttu á tímabilinu þar sem flestir bjuggust við að liðið myndi enda í erfiðri fallbaráttu, en svo var ekki.
„24. maí er fullkominn dagur," sagði Le Bris eftir sigurinn gegn Chelsea. „Við unnum úrslitaleik umspilsins á þessum degi í fyrra og í dag komumst við í Evrópudeildina. Það er klikkaður árangur.
„Við verðum að núllstilla okkur sem fyrst og hefja undirbúning frá næsta tímabil sem verður fullt af nýjum áskorunum. Við munum nýta kvöldið í kvöld til að fagna þessum áfanga vel og innilega."
Granit Xhaka var keyptur til Sunderland síðasta sumar og fékk fyrirliðabandið. Hann hefur verið magnaður á leiktíðinni og var orðlaus að leikslokum.
„Ég er orðlaus, þetta er ótrúlegt. Við afrekuðum eitthvað sem enginn hafði trú á."
24.05.2026 18:36
Sunderland átti að falla miðað við xG - Chelsea óheppnir



