Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
banner
   sun 24. maí 2026 14:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola bætir félagsmet í sínum síðasta leik
Mynd: EPA
Pep Guardiola stýrir Man City í síðasta sinn í dag þegar liðið fær Aston Villa í heimsókn.

Þetta verður 593. leikurinn sem hann stýrir hjá Man City en hann bætir þar með met Les McDowall sem stýrði liðinu í 592 leikjum frá 1950-1963.

Guardiola nær þessu á þremur árum skemur en McDowall þar sem leikjaálagið í dag er orðið mun meira.

Sigurhlutfall Guardiola hjá City er rúmlega 70% en Manuel Pellegrini er næstur en hann var með tæplega 60% sigurhlutfall. Guardiola vann tuttugu titla hjá City. Liðið vann báða bikarkeppnirnar á Englandi á þessu tímabili en lýkur keppni í 2. sæti í úrvalsdeildinni.
Slapp
banner
banner