West Ham United féll úr ensku úrvalsdeildinni í dag sem veldur því að ekkert lið sem byrjar á stafnum W verður í efstu deild á Englandi í fyrsta sinn frá stofnun enska deildakerfisins árið 1888.
West Ham og Wolves féllu saman í ár en á síðustu rúmum 100 árum hefur að minnsta kosti eitt lið af West Ham, Wolves og West Bromwich Albion leikið í efstu deild.
Ekkert þeirra þriggja lék í efstu deild tímabilið 1911/12 en þá hét Arsenal sínu gamla nafni, Woolwich Arsenal, og byrjaði því a W.
Sheffield Wednesday byrjaði líka á W á þessu tímum þegar félagið hét The Wednesday.
Wolves og West Brom voru meðal stofnenda enska deildakerfisins árið 1888.



