Jamie Vardy fellur
Öllum leikjum nema einum er lokið í ítölsku Meistaradeildarbaráttunni og er ljóst að AC Milan missir af sæti í Meistaradeild Evrópu eftir ótrúlega lélegan endi á tímabilinu.
Milan nægði jafntefli á heimavelli gegn Cagliari í dag en lærlingar Massimiliano Allegri réðu ekki við gestina frá Sardiníu og töpuðu afar óvænt. Þetta var sjötta tap liðsins í síðustu tíu deildarleikjum tímabilsins.
Cagliari sýndi frábæra frammistöðu og var sterkara liðið á San Siro en Alexis Saelemaekers tók forystuna fyrir heimamenn í Mílanó snemma leiks. Það dugði ekki til því Cagliari fékk urmul góðra færa og stóð að lokum uppi sem verðskuldaður sigurvegari.
Þessi úrslit vekja athygli því Cagliari var ekki að spila upp á neitt á meðan Milan er að missa af Meistaradeildinni.
Þetta eru frábærar fréttir fyrir Cesc Fábregas og lærlinga hans í Como sem felldu Cremonese í dag. Nico Paz hefur verið að glíma við meiðsli og var ónotaður varamaður.
Como lagði nýliða Cremonese á útivelli og tókst Jamie Vardy ekki að koma í veg fyrir tap. Como fer upp í sögulegt Meistaradeildarsæti með sigrinum.
AS Roma fer einnig í Meistaradeildina eftir að hafa lagt Verona á útivelli í leik þar sem Paulo Dybala lagði bæði mörkin upp. Dybala rennur út á samningi í sumar og er talinn vilja reyna fyrir sér í enska boltanum áður en hann snýr aftur heim til að ljúka ferlinum í Argentínu.
Liðsfélagar Þóris Jóhanns Helgasonar í Lecce björguðu sér þá frá falli með sigri gegn Genoa, en Þórir var ónotaður varamaður eins og svo oft áður á leiktíðinni. Mikael Egill Ellertsson var á sínum stað í byrjunarliði Genoa.
Að lokum er Juventus að keppa nágrannaslag við Torino en þeim leik var frestað um klukkustund vegna mikilla óeirða fyrir upphafsflautið. Stuðningsmenn liðanna slógust harkalega og enduðu nokkrir á spítala.
Juve leiðir 0-1 en á ekki lengur möguleika á að enda í Meistaradeildarsæti eftir úrslit dagsins. Juve fer því í Evrópudeildina ásamt Milan.
Milan 1 - 2 Cagliari
1-0 Alexis Saelemaekers ('2 )
1-1 Gennaro Borrelli ('20 )
1-2 Juan Rodriguez ('57 )
Cremonese 1 - 4 Como
0-1 Jesus Rodriguez ('36 )
0-2 Anastasios Douvikas ('51 )
1-2 Federico Bonazzoli ('55 , víti)
1-3 Lucas Da Cunha ('74 , víti)
1-4 Lucas Da Cunha ('81 )
Rautt spjald: Alberto Grassi, Cremonese ('71)
Verona 0 - 2 Roma
0-1 Donyell Malen ('56 )
0-1 Donyell Malen ('56 , Misnotað víti)
0-2 Stephan El Shaarawy ('90 )
Rautt spjald: Nicolas Valentini, Verona ('50)
Lecce 1 - 0 Genoa
1-0 Lameck Banda ('6 )


