Arnór Ingvi Traustason og félagar í New England Revolution eru á toppnum í austurdeild MLS-deildarinnar.
Arnór lék síðustu tuttugu mínúturnar þegar Revolution vann New York Red Bulls á heimavelli, 3-2. New England er með fimm stiga forskot á Orlando og Philadelphia en Orlando á leik til góða.
Arnór lék síðustu tuttugu mínúturnar þegar Revolution vann New York Red Bulls á heimavelli, 3-2. New England er með fimm stiga forskot á Orlando og Philadelphia en Orlando á leik til góða.
Guðmundur Þórarinsson var þá kominn aftur í byrjunarlið New York City eftir tvo leiki í röð á bekknum.
Gummi lék fyrstu 87 mínúturnar í 1-0 heimasigri gegn Atlanta. New York er í 4. sæti austurdeildarinnar, níu stigum á eftir New England en á leik til góða.
Athugasemdir