Fotbolti.net
24.06.21 - 20:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bandarísku landsliðskonurnar yfirgefa Man Utd (Staðfest)

Tobin Heath.

Tobin Heath.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Bandarísku landsliðskonurnar Christen Press og Tobin Heath verða ekki áfram í herbúðum Manchester United á næstu leiktíð.
Þær skrifuðu báðar undir eins árs samning fyrir síðustu leiktíð og framlengja hann ekki.

Heath og Press voru öflugar í búningi United, en Heath gat þó ekki spilað á seinni hluta tímabilsins vegna meiðsla.

Þetta er mikil blóðtaka fyrir Man Utd sem er enn án þjálfara eftir að Casey Stoney hvarf á braut eftir síðustu leiktíð. Stoney hafði þjálfað liðið frá stofnun þess fyrir þremur árum síðan.

María Þórisdóttir er á mála hjá Man Utd. María er norsk landsliðskona en faðir hennar er íslenski handboltaþjálfarinn Þórir Hergeirsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.