QPR hefur gengið frá kaupum á norska miðjumanninum Stefan Johansen en hann kemur frá Fulham.
Johansen er 30 ára gamall og var á láni hjá QPR frá Fulham á síðustu leiktíð.
Hann skoraði 4 mörk í 21 leik fyrir félagið og ákvað QPR að gera skiptin varanleg.
Johansen gerði í dag þriggja ára samning við QPR eftir að hafa verið á mála hjá Fulham í fimm ár.
Hann hefur einnig spilað fyrir Celtic, WBA, Strömsgodset og Bodö/Glimt á ferlinum og þá á hann 55 landsleiki og 6 mörk fyrir Noreg.
Athugasemdir