Fotbolti.net
24.07.26 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson

Celtic reynir að kaupa fyrrum framherja Vals

Celtic reynir að kaupa fyrrum framherja Vals
Canon

Mynd: EPA

Skotlandsmeistarar Celtic eru í viðræðum við norska stórveldið Bodö/Glimt um félagaskipti fyrir framherjann öfluga Kasper Högh.
Eigi ekki lengur möguleika á Íslandsvininum
TENGT EFNI

Eigi ekki lengur möguleika á Íslandsvininum

Celtic hefur fylgst með Kasper í góðan tíma og reyndi við hann í síðasta vetrarglugga, en framherjinn á þrjú og hálft ár eftir af samningi sínum í Bodö.

Samkvæmt Sky Sports gæti Kasper verið á leið til Skotlands ef aðilar ná samkomulagi.

Norwich reyndi að kaupa Kasper í vetrarglugganum og bauð 7 milljónir punda en leikmaðurinn ákvað að vera áfram í Noregi. Bodö/Glimt lagði bæði Atlético Madrid og Manchester City að vell í Meistaradeild Evrópu í janúar, áður en liðinu tókst að slá Inter, sem fór í úrslitaleikinn í fyrra, afar óvænt úr leik.

Til gamans má geta að Kasper lék á láni hjá Val seinni hluta sumarsins 2020 en dvöl hans einkenndist af miklum meiðslavandræðum.

Hann er 25 ára gamall og hefur komið með beinum hætti að 26 mörkum í 30 leikjum með Bodö/Glimt í öllum keppnum á yfirstandandi tímabili. Hann kom að 8 mörkum í 12 leikjum í Meistaradeild Evrópu á leiktíðinni.

Stjórnendur Celtic vona að Högh geti fyllt í skarðið sem Daizen Maeda skilur eftir með félagaskiptum sínum til Ipswich.
Celtic reynir að kaupa fyrrum framherja Vals
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.