Fotbolti.net
24.07.26 - 17:33
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

„Stjörnugalið“ ef hann sleppur

Kristján Flóki traðkaði á Ívari.

Kristján Flóki traðkaði á Ívari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Flóki Finnbogason leikmaður FH hefur ekki verið dæmdur í bann fyrir að traðka á Ívari Erni Árnasyni í viðureign liðanna í Kaplakrika á mánudaginn.

„Núna þegar við erum að taka upp þennan þátt eru ekki komnar neinar fréttir en það yrði alveg stjörnugalið ef Kristján Flóki fær ekki bann," segir Elvar Geir Magnússon í útvarpsþættinum Fótbolti.net.
Myndir: Kristján Flóki steig á Ívar - Fer hann í bann?
TENGT EFNI

Myndir: Kristján Flóki steig á Ívar - Fer hann í bann?

„Þetta ætti að vera þriggja leikja bann. Hann lítur niður og sér hann liggja þarna og labbar bara yfir hann. Notar hann eins og brú. Þessar myndir eru mjög augljósar og aðgengilegar," segir Baldvin Borgarsson og Elvar bætir við: „Ég veit ekki hvaða fordæmi þeir væru að gefa ef þeir sleppa honum."

Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net er ekki búið að senda atvikið á borð aganefndar en dómarar leiksins sáu það ekki á vellinum. FH heimsækir Fram á sunnudag og allt bendir til þess að Kristján Flóki verði löglegur í þeim leik, en enn er þó mögulegt að atvikið verði tekið fyrir aganefnd í næstu viku.

Útvarpsþátturinn - Bikartöfrar, Evrópustig og Akureyrarslagur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.