Fotbolti.net
24.07.26 - 18:54
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu mörkin: Unglingar Man Utd skelltu Freysa og lærisveinum

Sjáðu mörkin: Unglingar Man Utd skelltu Freysa og lærisveinum
Canon

Mynd: EPA

Rosenborg 0 - 5 Man Utd
0-1 Shea Lacey ('31)
0-2 Joshua Zirkzee ('56)
0-3 Jacob Devaney ('63)
0-4 Harry Amass ('72)
0-5 Ethan Williams ('84)
Freyr Alexandersson og lærlingar hans í liði Rosenborg tóku á móti Manchester United í æfingaleik í dag þar sem lærlingar Michael Carrick mættu með ungt byrjunarlið til leiks.

Shea Lacey skoraði eina markið í fyrri hálfleik en liðsfélagar hans gerðu út af við Norðmennina eftir leikhléð.

Joshua Zirkzee, Jacob Devaney, harry Amass og Ethan Williams skoruðu fjögur mörk á hálftíma kafla í síðari hálfleik til að tryggja fimm marka stórsigur.

Freyr gerði mikið af breytingum á byrjunarliðinu sínu þar sem hann skipti nánast öllu liðinu útaf í hálfleik, þegar staðan var 0-1.

Þessi sigur er framför fyrir Rauðu djöflana sem töpuðu gegn Wrexham í fyrsta æfingaleik undirbúningstímabilsins.

Sjáðu mörkin: Unglingar Man Utd skelltu Freysa og lærisveinum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.