24.07.26 - 16:00
Elvar Geir Magnússon
Forseti Argentínu: Fólk er afbrýðisamt

Javier Milei, forseti Argentínu.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Javier Milei, forseti Argentínu.

Mynd: EPA
Javier Milei, hinn umdeildi forseti Argentínu, segir að fólk sé afbrýðisamt því Argentínumenn séu góðir í nánast öllu.
Argentínska landsliðið fékk mikla gagnrýni fyrir hegðun sína, spilamennsku og bellibrögð í tapleiknum gegn Spáni í úrslitaleik HM á sunnudag.
Milei mætti sjálfur ekki á leikinn þar sem hann er svo hjátrúarfullur. Hann hafði horft á alla sigurleiki Argentínu í stofunni heima hjá sér og vildi ekki breyta út af vananum.
„Vandamálið með Argentínu er að við vekjum alltaf mikla athygli, við förum ekki framhjá neinum, fólk öfundar okkur og við erum góð í næstum öllu. Einhver þurfti að segja þetta," segir Milei.
„Argentína sýndi yfirvegaða framkomu og stillingu allan tímann, jafnvel þegar dómarar tóku rangar ákvarðanir gegn liðinu í einstaka leikjum; leikmenn brugðust við af mikilli yfirvegun og prúðmennsku og sýndu allan tímann mikla baráttuanda allt til enda."

TENGT EFNI
Rannsaka hegðun Argentínumanna eftir lokaflautið
Ummæli Milei eru ekki í takti við þær samsæriskenningar að dómgæslan hafi verið hliðholl Argentínu á mótinu. Þá er FIFA að rannsaka lætin sem urðu eftir lokaflautið.
Vinsældir Milei hafa hrapað á þessu ári í kjölfar ásakana um spillingu.