24.07.26 - 14:02
Elvar Geir Magnússon
Snýr Árni Marinó aftur í markið hjá ÍA?

Árni Marinó ristarbrotnaði í maí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Sölvi Símonarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árni Marinó ristarbrotnaði í maí.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skagamenn hafa tapað fimm síðustu leikjum í Bestu deildinni og sogast niður í alvöru fallbaráttu. Liðið hefur fengið á sig 16 mörk alls í þessum fimm leikjum eða yfir þrjú mörk að meðaltali í leik.
Næsti leikur liðsins verður heimaleikur gegn Stjörnunni á sunnudag, í 16. umferð deildarinnar. Gríðarlega mikilvægur leikur en liðin eru jöfn að stigum.
Næsti leikur liðsins verður heimaleikur gegn Stjörnunni á sunnudag, í 16. umferð deildarinnar. Gríðarlega mikilvægur leikur en liðin eru jöfn að stigum.

TENGT EFNI
Ekki möguleiki á þjálfarabreytingum uppi á Skaga
Spurning er hvort Árni Marinó Einarsson snúi aftur í markið hjá ÍA? Árni hefur verið skráður sem varamarkvörður á skýrslu í síðustu tveimur leikjum.
Árni var aðalmarkvörður ÍA þegar hann ristarbrotnaði í leik gegn Þór í maí. ÍA fékk þá undanþágu til að sækja markvörð og keypti Jón Sölva Símonarson, 19 ára unglingalandsliðsmarkvörð, frá Breiðabliki. Hann hefur varið mark ÍA í fjarveru Árna.
Árni er að koma til baka og ekki ólíklegt að hann taki aftur stöðuna milli stanganna hjá ÍA.
Næstu leikir í Bestu deildinni:
föstudagur 24. júlí
20:00 Víkingur R.-Keflavík (Víkingsvöllur)
sunnudagur 26. júlí
19:15 ÍA-Stjarnan (ELKEM völlurinn)
19:15 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)
mánudagur 27. júlí
18:00 Breiðablik-ÍBV (Eikarvöllurinn)
19:15 KA-Þór (Greifavöllurinn)

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 15 | +38 | 40 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 15 | +13 | 33 |
| 4 | Breiðablik | 15 | +8 | 26 |
| 5 | Keflavík | 15 | -4 | 19 |
| 6 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 7 | ÍBV | 15 | -7 | 16 |
| 8 | Stjarnan | 15 | -8 | 15 |
| 9 | ÍA | 15 | -12 | 15 |
| 10 | KA | 15 | -8 | 14 |
| 11 | FH | 15 | -11 | 12 |
| 12 | Þór | 15 | -25 | 11 |