Fotbolti.net
24.07.26 - 09:35
Elvar Geir Magnússon

Arsenal gerir nýtt tilboð í Bruno - Tchouameni til Man Utd?

Bruno Guimaraes er sterklega orðaðr við Arsenal.

Bruno Guimaraes er sterklega orðaðr við Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Arsenal og Manchester United koma mikið við sögu í öflugum slúðurpakka á þessum fallega föstudegi. Góða helgi!
Arsenal ætlar að gera nýtt 70 milljóna punda tilboð í miðjumanninn Bruno Guimaraes (28). Newcastle er meðvitað um að ósk leikmannsins sé að fara til Arsenal og viðræður eru í gangi. (BBC)

Spænska risaliðið Real Madrid er opið fyrir því að selja franska varnartengiliðinn Aurelien Tchouameni (26) til Manchester United. (Sun)

Manchester United vill styrkja miðsvæði sitt og eru franski miðjumaðurinn Manu Kone (25) hjá Roma og kamerúnski landsliðsmaðurinn Carlos Baleba (22) hjá Brighton meðal leikmanna á blaði. (Sky Sports)

Bandaríski miðjumaðurinn Tyler Adams (27) hjá Bournemouth er einnig möguleiki fyrir Manchester United en hann er metinn á um 35 milljónir punda. (Sky Sports)

John Stones (32), fyrrum varnarmaður Manchester City, og Ezri Konsa (28) hjá Aston Villa eru meðal skotmarka Arsenal eftir að William Saliba (25) meiddist. (Sky Sports)

Chelsea er líklegast til að landa Kerim Alajbegovic (18) frá Bayer Leverkusen og þá er félagið einnig í viðræðum um að selja franska miðvörðinn Axel Disasi (28) til Crystal Palace. (Telegraph)

Chelsea hefur náð samkomulagi um að kaupa bandaríska kantmanninn Benji Flowers (15) frá MLS-félaginu Dallas þegar hann verður 18 ára. (Athletic)

Arsenal og Manchester City eru meðal félaga í kapphlaupinu um kantmanninn Yan Diomande (19) hjá RB Leipzig. Þýska félagið hefur áður hafnað 69 milljóna punda tilboði Liverpool í Fílabeinsstrendinginn. (Bild)

Japanski sóknarmaðurinn Daizen Maeda (28) hjá Celtic fer í læknisskoðun hjá Ipswich Town í dag. (Sky Sports)

Enski kantmaðurinn Jack Harrison (29) hjá Leeds er að nálgast skipti til New England Revolution í bandarísku MLS-deildinni. (Athletic)

Everton hefur áhuga á kanadíska landsliðsmanninum Alistair Johnston (27) hjá Celtic. Hægri bakvörðurinn er talinn góður kostur til að fylla skarð Seamus Coleman. (Daily Record)

Enzo Maresca stjóri Manchester City vill ólmur fá argentínska miðjumanninn Enzo Fernandez (25) og franska bakvörðinn Malo Gusto (23) frá sínu fyrrum félagi Chelsea. (Caughtoffside)

Aston Villa hefur áhuga á enska miðjumanninum James Garner (25) hjá Everton. (Football Insider)
Tchouameni til Man Utd?

Tchouameni til Man Utd?

Canon

Mynd: EPA

Konsa til Arsenal?

Konsa til Arsenal?

Canon

Mynd: EPA

Diomande er vinsæll og veit af því.

Diomande er vinsæll og veit af því.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.