Fotbolti.net
24.07.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Schlager kominn til Nottingham (Staðfest)

Schlager kominn til Nottingham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Enska úrvalsdeildarfélagið Nottingham Forest er búið að krækja í miðjumanninn Xaver Schlager á frjálsri sölu eftir að samningur hans við RB Leipzig rann út um síðustu mánaðamót.
Pereira rekinn tveimur mínútum fyrir frestinn (Staðfest)
TENGT EFNI

Pereira rekinn tveimur mínútum fyrir frestinn (Staðfest)

Schlager er 28 ára gamall landsliðsmaður Austurríkis með 55 leiki að baki en hann hefur leikið með Leipzig í þýska boltanum síðastliðin fjögur ár. Þar áður var hann hjá Wolfsburg, Red Bull Salzburg og FC Liefering.

Miðjumaðurinn gerir tveggja ára samning og endursameinast Oliver Glasner sem þjálfaði hann hjá Wolfsburg. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Forest fær til sín eftir að Glasner var óvænt ráðinn inn í sumar til að taka við af Vítor Pereira.

Schlager lék í heildina 150 leiki í efstu deild þýska boltans á sjö árum í Wolfsburg og Leipzig.

Schlager kominn til Nottingham (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.