23.07.26 - 19:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arnór Gauti á leið til Króatíu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Gauti Jónsson, leikmaður Breiðabliks, er á leið til Slaven Belupo í Króatíu samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Hann flýgur til Króatíu á laugardaginn.
Hann flýgur til Króatíu á laugardaginn.
Slaven Belupo spilar í efstu deild í Króatíu en liðið hafnaði í sjöunda sæti á síðustu leiktíð. Fyrsti leikur liðsins á nýju tímabili er 31. júlí gegn ríkjandi meisturum í Dinamo Zagreb.
Arnór Gauti (2002) er miðjumaður en hann er uppalinn í Aftureldingu. Hann gekk til liðs við Breiðablik frá Fylki árið 2024. Hann hefur komið við sögu í níu leikjum í Bestu deildinni og fjórum í Mjólkurbikarnum í sumar. Hann varð Íslandsmeistari með Breiðabliki 2024.