24.07.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Summerville til Al Hilal (Staðfest) - Greiða 60 milljónir punda

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Crysencio Summerville er genginn í raðir Al Hilal í Sádi-Arabíu sem kaupir hann af West Ham.
Hollenski kantmaðurinn er keyptur á 60 milljónir punda samkvæmt Sky Sports; Al Hilal greiðir 55 milljónir punda og sú upphæð getur hækkað um 5 milljónir punda til viðbótar.
Summerville er þriðja hæsta salan í sögu West Ham á eftir sölunni á Declan Rice til Arsenal og sölunni á Mateus Fernandes til Tottenham fyrr í sumar.

Hann er 24 ára og skrifar undir fjögurra ára samning í Sádi-Arabíu. Hjá Al Hilal eru leikmenn eins og Karim Benzema, Rúben Neves, Theo Hernandez og Sergej Milinkovic-Savic.